1.12.07

Hey, hlustid á thennan krakkar: „Bloggid er dautt!“ (but I've got more than a lifetime to live lovin' you)

Hæ. Ég er hættur að blogga. Sem kallar svosem ekki beinlínis á tilkynningu, nema til að kveðja bara kurteisislega, þá sem þú heldur að vilji muna eftir mér … mér finnst þetta blogg vera orðið síðasti bærinn í Breiðholtinu, svo að segja, og grunar raunar að fleirum líði eins. Hver er ekki síðasti bærinn í Breiðholtinu á þessari öld illskunnar og heimskunnar? Í augnablikinu er of lítið frelsi hér að finna, kannski ekkert, enga fótfestu, sem þýðir kannski líka: enga þögn. Munið þið hvað var hljótt og fínt á Netinu 2004, krakkar?

Ég var að setja niður fyrir mér þrjár grundvallarhreyfingar til uppnáms og usla. Hikum ekki við að hugsa kerfisbundið:

Að segja í opinberum texta það sem á bara að liggja milli línanna.

Að gera að bakgrunni aðgerða manns það í opinbera textanum sem á að hunsa – taka hann á orðinu.

Að fremja aðgerðir á röngum stöðum: gefa efni form sem er ætlað öðru efni, eða gefa formi efni sem yfirleitt birtist í öðru formi (lágmarkshreyfing, svo að segja og sameinar kannski allar aðrar, en er alveg vítal samt).

Æði er þetta þrennt og kannski fleira.

Jæja, það er fínt að loka textum. Nú líður mér eins og ég ýti á takka á þotu, skjóti mér upp úr sætinu, með fallhlíf á bakinu, áður en hún hrapar einhvers staðar í sjóinn. Vona að þetta blogg hrapi ekki í byggð og valdi mannskaða, það væri leiðinlegt. Nóg komið. Endir.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nei. Haltu áfram, þetta er flott hjá þér.

Hildur Lilliendahl sagði...

Æi, Haukur. Kommon. Höfum við gert þér eitthvað eða ertu bara að reyna að vera leiðinlegur? Hættu þessari vitleysu.

Haukur Már sagði...

Hæ, takk, þið eruð fín líka en nei. Nóg komið hér. Snúa mér að öðru, undirbúningi jóla og annarra stórhátíða – þó himinn og jörð munu farast verða engin jól án grauts, krakkar.

Vildi samt skjóta þessu að, þar sem ég sit og les í tveimur bókum eftir Baudrillard, einni gamalli og einni nýrri: Það er hin raunverulega furða vorra tíma, á Íslandi hinu næstum nýja, að tekist hafi að „kenna“ höfunda á við hann í bókmenntafræði, án pólitíkurinnar, og hlaupið yfir að hann vísar í Karl Marx tíu sinnum oftar en nokkurn annan höfund, og það ekki til að hrekja mál hans.

Svo var ég bara að djóka, ég er ekki að fara að snúa mér að undirbúningi jóla fyrst og fremst, heldur ætla ég að halda áfram að vera furðu lostinn yfir heiminum, en ef ég gapi svona mikið á internetinu vakna ég alla morgna með troðfullan munninn. Gapa hægar.

Hildur Lilliendahl sagði...

Á þessum ranti þínum ætti þér að vera fyllilega ljóst að þig dauðlangar að halda áfram. Og hana nú.

Iceland Today sagði...

hvaðahvaðahvaðahvaða? það er bara allt í lagi að vera misskilinn, það á bara að hafa gaman af þessu, fá útrás fyrir innilokuð skoðanaprump, skamma fólk þegar það copy peistar færslur og birtir á prenti, búa til samtöl, frelsa hausa þó ekki sé nema kannski í sekúndu... þetta á að vera stuð, ekki puð.

Gunnhildur sagði...

mmmh mig grunar að fréttir af andláti þínu séu stórlega ýktar.
gleðijól.
g.