Rétt upp hönd þeir sem nenna hvorki að tala um Bubba né Sindra Eldon!
Rakst á þetta á hagstofuvefnum:
Í ritinu er skoðuð staða ungs fólks á aldrinum 20-24 ára, sem ekki hefur lokið framhaldsskólastigi og ekki stundar nám. Litið er svo á að þessi hópur sé í hættu á að sitja eftir í þjóðfélagi nútímans sem krefst menntaðs vinnuafls. Þessi hópur er líklegri til að vera atvinnulaus og sinna minna krefjandi störfum. Á Íslandi tilheyra tæplega 30% 20-24 ára fólks þessum hópi en meðaltal OECD landa er 19%. Í fjórum löndum OECD ríkja eru fleiri ungmenni í þessum hópi en á Íslandi, það er í Mexíkó, Tyrklandi, Portúgal og Spáni. Á Íslandi, í Portúgal og á Spáni eru flestir í þessum hópi í starfi á vinnumarkaðinum. Í 19 af 27 OECD löndum, þar á meðal Íslandi, eru karlar fjölmennari í þessum hópi en konur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli