20.11.05

Nottin

Hef ekki bloggað í ár og öld. Og núna blogga ég bara vegna þess að ég nenni ekki að fara að sofa, nenni ekki að vinna, nenni varla að lesa, nenni ekki að hella mér upp á te, nenni ekki niður í bæ á barinn, nenni beinlínis ekki neinu, vildi hafa einhvern að hanga með, hérna heima hjá mér, helst stúlku sem myndi dást jafn mikið að mér og ég myndi dást að henni – þetta tungumál hérna virðist mér allt í einu aftur framandi, annarlegt, orðið dást virðist einhvern veginn skrítið … hef verið að hugsa meira í myndum en orðum upp á síðkastið – hef verið að kenna myndmál raunar, og læri meira af því að reyna að kenna en af því að reyna að læra … dagarnir eru alveg ljómandi ágætir, fullir af spennandi stöffi jafnvel en mér liggur ekki beinlínis neitt á hjarta. Sem er sjálfsagt algengasta inntak blogga, ásamt þessu, að minnast á að það sé algengasta inntak blogga. Ég nenni ekki að taka úr þvottavélinni, það er varla að ég nenni að reykja.

Ég sakna erlendra menntamanna. Og kvenna.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Á heimasíðu litla bróður þíns er gefið í skyn að móðir hans, faðir hans, stóra systir hans og stóri bróðir hans hafi öll gengið í MR. Það er einhver að ljúga að mér hérna. Eða gefa í skyn lygar. Ég kann ekki við svonalagað.

-Eiríkur

Einar Axel Helgason sagði...

Nema hann eigi annan lítinn bróður sem ég veit ekki af, þá hefur eitthvað farið fram hjá mér. Ef hann á annan lítinn bróður hefur eitthvað stærra farið fram hjá mér.

Einar Axel Helgason sagði...

Nei, það...

Ég hef það reyndar að sið að birta skrif annarra án ábyrgðar, svo það er alveg óþarfi að taka mark á þessu.