29.11.05

Mannasiðir holdsins



Andinn er veikur en holdið kann sig. Eftir að geta ekki gert upp við mig hvort ég vildi taka þátt í opinberri athöfn um undirskrift samnings við Landsbankann, hinn almenna kaupanda 1300 ljóðabóka frá Nýhil, vakna ég einfaldlega fárveikur nú í morgun. Lífeðlisfræðin sér um sína, ég kýs að túlka veikindi mín út frá töfraraunsæi, líta á þau sem pólitískt eðli, örlög eða helberan dónaskap eftir því hvaðan á málið er litið. Í öllu falli held ég mig heima.

Hvurnin hefur annars lífið verið upp á síðkastið? Alveg ljómandi ágætt. Þessar fallegu bækur okkar komu út í síðustu viku. Þess utan hef ég sinnt kennslu, fyrst við Kvikmyndaskóla Íslands, síðan hönnunardeild LHÍ og hvort tveggja reynist mér hollt, hvað sem nemendum þykir.

Lífið er meira spennandi utan skóla, þó ekki væri nema vegna bókanna sem falla utan allra námsskráa. The art of seduction eftir Robert Greene hefur til dæmis, mér vitanlega, aldrei verið kennd við Háskóla Íslands. Og trúlega ekki heldur við Listaháskólann.

Helstu rannsóknaniðurstöður helgarinnar: Partíið heldur áfram hvað sem tautar og raular – Valur stendur brosandi utan við Sirkús með greinar eftir Badiou á milli handanna, Reykjavík er skemmtiferðaskip á miðju Atlantshafi og fólkið vaggar fram og til baka, reynir að stíga ölduna, ælir svo yfir borðstokkinn.

Desember er tannlæknamánuður. Ef einhver getur mælt með góðum tannlækni er ég allur eyru. Vil ekki rotna, ekki strax.

21.11.05

The sarcasterizer!

http://www.collisiondetection.net/mt/archives/000271.html

20.11.05

Nottin

Hef ekki bloggað í ár og öld. Og núna blogga ég bara vegna þess að ég nenni ekki að fara að sofa, nenni ekki að vinna, nenni varla að lesa, nenni ekki að hella mér upp á te, nenni ekki niður í bæ á barinn, nenni beinlínis ekki neinu, vildi hafa einhvern að hanga með, hérna heima hjá mér, helst stúlku sem myndi dást jafn mikið að mér og ég myndi dást að henni – þetta tungumál hérna virðist mér allt í einu aftur framandi, annarlegt, orðið dást virðist einhvern veginn skrítið … hef verið að hugsa meira í myndum en orðum upp á síðkastið – hef verið að kenna myndmál raunar, og læri meira af því að reyna að kenna en af því að reyna að læra … dagarnir eru alveg ljómandi ágætir, fullir af spennandi stöffi jafnvel en mér liggur ekki beinlínis neitt á hjarta. Sem er sjálfsagt algengasta inntak blogga, ásamt þessu, að minnast á að það sé algengasta inntak blogga. Ég nenni ekki að taka úr þvottavélinni, það er varla að ég nenni að reykja.

Ég sakna erlendra menntamanna. Og kvenna.

4.11.05

Ekki horuhus, kvennaleiga

Er hægt að tala ítrekað um „starfsmannaleigur“ án þess að detta í hug þrælahald?

10.10.05

Klukk

Ljúga fimm hlutum um sjálfan mig, biður rafaugað … ég hef ekki bragðað áfengi síðustu þrjár vikur, mér líður hvergi betur en í íslensku roki, ég er fyrst og fremst afar feginn að þessu hvimleiða ástarsambandi mínu og hinnar ítölsku er lokið, ég veit hvað ég á af mér að gera í dag, og mér finnst öll þau verkefni sem ég hef tekið mér fyrir hendur síðasta hálfa árið óstjórnlega skemmtileg, sem verður til þess að ég stekk á fætur við dögun á hverjum morgni, óþreyjufullur að hefjast handa. Þess utan skil ég fyllilega stöðu mína í lífinu, til hvers er ætlast af mér af hálfu guðs og manna og við hverjum þessara krafa ég vil verða, ég geri mér grein fyrir þeirri sögulegu þróun sem ég er óhjákvæmilega þátttakandi í og veit hvað ég vil leggja til hennar, og þar sem ég lifi af fullkomnum heilindum gagnvart guði, mönnum og sjálfum mér hef ég aldrei logið eða látið í veðri vaka að hlutir séu öðruvísi en þeir eru.

Einhvern veginn svona?

Jæja, en þetta er nú ekki jafn slæmt og það ef til vill hljómar. Það er bara rokið annars vegar og kvefið hins vegar sem getur gert mann dáldið pirraðan. Og þynnkan. Verðskulduð þynnka.

29.9.05

Birtan í Róm er í alvörunni frá liðnum áratugum og öldum

Jæja. Berlín. Eftir Róm. Fyrst af öllu get ég sagt þessari stúlku sem spyr alltaf við og við hvort ég sé á lausu, hérna á kommentakerfinu, að já, sjálfsagt útleggst það þannig núna, og þegar ég kem til Íslands skaltu endilega reyna við mig, ef þú ert frábær, ég er alveg til í að hitta frábærar stelpur.

Þetta var semsagt þannig ferð til Rómar og þó var hún góð. Á hinn undarlegasta máta.

Hm ... ég er farinn að taka þátt í myndlistasýningum. Sem er undarlegt. Er semsagt að lesa ljóð hérna á Berliner Liste, sem má sjálfsagt gúgla. Stórlaxagrill sýnist mér. Það ætti að vera dáldið heitt, einhver ætti að vilja reyna við strák sem les ljóð á alþjóðlegum listasýningum? Og hoppar svona um Evrópu fyrir peningana sína og kaupir notuð föt frekar en leigja íbúð ...

Hvar á maðurinn heima? Uppi í ristlinum á sjálfum sér. Þar ætlar hann nú að leggjast út af og dvelja fram eftir morgni, meðvitundarlaus, ekki af áfengisofneyslu heldur þreytu einni. Og ef til vill vöntun, einhvers konar vöntun, einhvers konar áfergju og vöntun.

Rafauga, þú varst eitthvað að pota í mig ... ég skil ekki hvers er vænst, veit ekki hvað klukk er, reyndu aftur.