6.3.06

Tjáningarfrelsið

Is the victim supposed to honor to the executioner's "free speech"? Should my father's beautiful aunt Anna and the 28 other persons from my father's family, who died in Nazi concentration camps, politely have said "To Hitler's right to lie..." when they stepped into the chamber of death? Thomas Koppel, danskt tónskáld.

3.3.06

Og sja!


Um leið og ég verð að biðjast afsökunar á því, fyrir hönd mín og/eða Fréttablaðsins, að hafa gleymt túnfiski í uppskriftinni að Úrsúlupasta sem birtist á mínum vegum í blaðinu í gær, lýsi ég mig aldeilis hlessa á sumum orðanna sem skólaskáldið Sjón lætur falla um mig sama dag í Morgunblaðinu. Bjartur hefur endurbirt grein Sjóns hér. Ég skrifaði honum svar í morgun sem ég vona að Fréttablaðið birti á helginni. Hann sem er svo gott skáld … Upphaflega greinin, greinin um mig, sem Sjón nefnir svo, birtist annars líka á Kistunni.

Er að rísa úr flensu. Sjón hrinti mér raunar fram úr rúminu, ég held ég hefði legið degi lengur hefði hann ekki manað mig að hlaupa til Pakistan …

Annars: letidagur.

1.3.06

Fegurð stærðfræðinnar


Ég var að reyna að skilja hæku sem Hreinn birti … og gafst upp eftir að afvegaleiðast að þessari mynd. Enda með flensu. Bleh bleh bleh.

28.2.06

Horreimin

Kvefaður. Snarkvefaður. Nostalgískt ástand, suma bestu daga bernsku minnar átti ég kvefaður. Tek við pöntunum á styrktarlínum í bókina mína í athugasemdadálkunum hér á blogginu.

27.2.06

Styrktarlínur til sölu inn í skáldsögu

Eftir klukkustundar sjálfboðavinnu í þágu íslenskrar heimspeki fór ég inn á vef íslandsbanka og tók þátt í leiknum „Meistarinn í fjármálum“ í von um 50.000 króna laun. Ég er síðan að spá í að stofna veðbanka um hvort ég verð dreginn þann 2. mars næstkomandi … einhvern veginn hlýt ég að geta breytt þessu í skotheldan ágóða. Hafi einhverjir betri hugmyndir um tekjulindir fyrir ungan rithöfund á krókaleið, látið vita hérna í athugasemdunum.

24.2.06

Að vera, nú eða ...

Í The Possibility of an island frá Houllebecque er frábær lína sem sögupersóna hefur eftir Harley de Dude: „Life is basically a conservative option“. Google segir mér hins vegar að hvorki línan né de Dude séu til.