21.11.05

The sarcasterizer!

http://www.collisiondetection.net/mt/archives/000271.html

20.11.05

Nottin

Hef ekki bloggað í ár og öld. Og núna blogga ég bara vegna þess að ég nenni ekki að fara að sofa, nenni ekki að vinna, nenni varla að lesa, nenni ekki að hella mér upp á te, nenni ekki niður í bæ á barinn, nenni beinlínis ekki neinu, vildi hafa einhvern að hanga með, hérna heima hjá mér, helst stúlku sem myndi dást jafn mikið að mér og ég myndi dást að henni – þetta tungumál hérna virðist mér allt í einu aftur framandi, annarlegt, orðið dást virðist einhvern veginn skrítið … hef verið að hugsa meira í myndum en orðum upp á síðkastið – hef verið að kenna myndmál raunar, og læri meira af því að reyna að kenna en af því að reyna að læra … dagarnir eru alveg ljómandi ágætir, fullir af spennandi stöffi jafnvel en mér liggur ekki beinlínis neitt á hjarta. Sem er sjálfsagt algengasta inntak blogga, ásamt þessu, að minnast á að það sé algengasta inntak blogga. Ég nenni ekki að taka úr þvottavélinni, það er varla að ég nenni að reykja.

Ég sakna erlendra menntamanna. Og kvenna.

4.11.05

Ekki horuhus, kvennaleiga

Er hægt að tala ítrekað um „starfsmannaleigur“ án þess að detta í hug þrælahald?

10.10.05

Klukk

Ljúga fimm hlutum um sjálfan mig, biður rafaugað … ég hef ekki bragðað áfengi síðustu þrjár vikur, mér líður hvergi betur en í íslensku roki, ég er fyrst og fremst afar feginn að þessu hvimleiða ástarsambandi mínu og hinnar ítölsku er lokið, ég veit hvað ég á af mér að gera í dag, og mér finnst öll þau verkefni sem ég hef tekið mér fyrir hendur síðasta hálfa árið óstjórnlega skemmtileg, sem verður til þess að ég stekk á fætur við dögun á hverjum morgni, óþreyjufullur að hefjast handa. Þess utan skil ég fyllilega stöðu mína í lífinu, til hvers er ætlast af mér af hálfu guðs og manna og við hverjum þessara krafa ég vil verða, ég geri mér grein fyrir þeirri sögulegu þróun sem ég er óhjákvæmilega þátttakandi í og veit hvað ég vil leggja til hennar, og þar sem ég lifi af fullkomnum heilindum gagnvart guði, mönnum og sjálfum mér hef ég aldrei logið eða látið í veðri vaka að hlutir séu öðruvísi en þeir eru.

Einhvern veginn svona?

Jæja, en þetta er nú ekki jafn slæmt og það ef til vill hljómar. Það er bara rokið annars vegar og kvefið hins vegar sem getur gert mann dáldið pirraðan. Og þynnkan. Verðskulduð þynnka.

29.9.05

Birtan í Róm er í alvörunni frá liðnum áratugum og öldum

Jæja. Berlín. Eftir Róm. Fyrst af öllu get ég sagt þessari stúlku sem spyr alltaf við og við hvort ég sé á lausu, hérna á kommentakerfinu, að já, sjálfsagt útleggst það þannig núna, og þegar ég kem til Íslands skaltu endilega reyna við mig, ef þú ert frábær, ég er alveg til í að hitta frábærar stelpur.

Þetta var semsagt þannig ferð til Rómar og þó var hún góð. Á hinn undarlegasta máta.

Hm ... ég er farinn að taka þátt í myndlistasýningum. Sem er undarlegt. Er semsagt að lesa ljóð hérna á Berliner Liste, sem má sjálfsagt gúgla. Stórlaxagrill sýnist mér. Það ætti að vera dáldið heitt, einhver ætti að vilja reyna við strák sem les ljóð á alþjóðlegum listasýningum? Og hoppar svona um Evrópu fyrir peningana sína og kaupir notuð föt frekar en leigja íbúð ...

Hvar á maðurinn heima? Uppi í ristlinum á sjálfum sér. Þar ætlar hann nú að leggjast út af og dvelja fram eftir morgni, meðvitundarlaus, ekki af áfengisofneyslu heldur þreytu einni. Og ef til vill vöntun, einhvers konar vöntun, einhvers konar áfergju og vöntun.

Rafauga, þú varst eitthvað að pota í mig ... ég skil ekki hvers er vænst, veit ekki hvað klukk er, reyndu aftur.

3.9.05

Ógnin

Ókei. Margt. Helvíti margt. Byrja hvar? New Orleans? Ég var í partíi rétt áðan þar sem ég stóð sjálfan mig að því að segja: „Næsta bók frá Zizek hlýtur að vera mögnuð, því heimurinn er bara alltof geðveikur einmitt núna!“ – Ég meinti þetta af einlægni og einmitt þannig þrífst engin kaldhæðni án einlægni – kantískt er kaldhæðni ótæk, því ef allir stunduðu hana alltaf væri hún sjálf þegar úr leik … eða hvað? Er heimur algjörrar lygi mögulegur? Leggjum það til hliðar: New Orleans og snjóflóðin í Súðavík. Ég er að reyna að sjá þetta fyrir mér: Snjóflóð fellur á Súðavík. Nokkrar fjölskyldur redda sér, en einhverjir deyja. Þeir sem redda sér fara í hús hinna og ræna sjónvörpunum. Og haglabyssum. Víkingasveitin er send uppeftir til að stöðva þjófana. Það er blindbylur og erfitt að ná tökum á ástandinu. Fólk liggur deyjandi í snjónum en hjálp er lofað. Víkingasveitinni verður eitthvað ágengt, skýtur manneskju á færi, sem sást bera hluti á milli húsa. Ef til vill hluti úr kaupfélaginu. Neyðaraðstoð er á leiðinni, víkingasveitin kallar eftir liðsauka. Forsetinn mætir og lýsir yfir áhyggjum af ástandinu. Bæjarstjórinn segir að fullorðinn maður hafi grátið, svo hörmulegt sé ástandið – bæjarstjórinn ítrekar: fullorðinn maður. Sú fregn spyrst að sýslumaðurinn hafi orðið undir – rán og gripadeildir færast í aukana - Kaupfélagið er beinlínis tæmt, en Víkingasveitin gómar flesta þjófana glóðvolga. Hjálparsveitin er víst á leiðinni.

Þegar lög og regla eru fyrirsjáanleg er víkingasveitarmönnum skipað að skjóta nokkra gargandi máva, sem gætu borið með sér fuglaflensu.

Það er alltof margt um málið að segja. Maður ræður sér ekki …

En ég var líka að koma úr partíi. Ísland er ofhlaðið merkingu. Raunverulega, það verður ekki þverfótað fyrir einsögu hvert sem litið er … of mörg hlutverk, of fátt fólk. Og stundum mætir maður, í augunum á hinum, þögulli viðurkenningu þess að sumt er ósagt. Og um leið, jafnvel, viðurkenningu þess að maður er ekki viss hvað það sé.

Í dag sat ég á kaffistofu með vini mínum og sagðist vera orðinn dónalegur og leiðinlegur við allar stelpur sem sofa hjá öðrum en mér. Þá gekk inn ung, snotur, gift móðir sem ég kannast við … ég veit ekki hvort henni virtist brugðið því hún heyrði það sem ég sagði eða ekki, en ég var hinn prúðmannlegasti.

Viti einhver af góðri og ódýrri íbúð í Reykjavík vil ég gjarna heyra.